*Helga*

Lífið er yndislegt!

12.08.2008 02:20:57 / johnsen

Í Sæluvímu!

Gott kvöld.

Ég sit hérna uppi í rúmi og get einfaldlega ekki sofnað eins og svo oft áður:) það er bara sumar og þá á ég alltaf erfitt með að sofna á kvöldin, hins vegar finnst mér rosa fínt að leggja mig á daginn, hehe... Þarf nú eitthvað að fara að gera í þessu fyrir skólann:)

Verslunarmannahelgin var æðisleg eins og vanalega hjá mér, enda ekki annað hægt þar sem ég og mínar vinkonur skelltum okkur til Vestmannaeyja á Þjóðhátíð:d Þessi staður og þessi útihátíð munu seint klikka í mínum augum:)

Ég, Bára og Unnur lögðum af stað á fimmtudagskvöldið í Reykjavík, komum við á Ruby Tuesday og fengum okkur að borða, ég fékk mér Chicken Alfredo pasta sem er svo ógeðslega gott!! Þetta var hálf fyndið vegna þess að okkur fannst maturinn okkar svo góður að við máttum hreinlega ekki vera að því að tala saman, ekki það, höfðum nógan tíma þegar leið á kvöldið:) Eftir þessa frábæru máltíð, sem ég borðaði svo mikið af að ég ældi næstum, þá keyrðum við niður í bæ og fórum á Sólon þar sem hún Bára mín gat fengið sér Strawberry Mojito sem er sko okkar drykkur!! Ég fékk mér að vísu ekki þar sem ég var bílstjóri kvöldsins en Bára drakk bara fyrir mig;) Við sátum þarna í smástund og spjölluðum saman og svona, og svo var kominn tími til að leggja í hann, þá var keyrt á nokkra staði til að leita af spilum en það gekk ekki þannig að við urðum bara að sætta okkur við það að geta ekki spilað í Herjólfi. Svo vorum við komnar í Þorlákshöfn og ákváðum að vera ekkert að flýta okkur að fara með töskurnar því það er alltaf best að setja þær síðast inn til að fá þær fyrstar;) svo komu Anna María, Óskar, Palli og Margrét Ósk sem voru okkar ferðafélagar og við sátum og spjölluðum í dágóða stund en svo allt í einu hrópar Unnur að það sé verið að loka gámnum og við fengum öll nett sjokk, ég stökk út úr bílnum og tók sprettinn að gámnum og bað þá að bíða eftir okkur, þeir voru ekkert alltof sáttir með okkur en hleyptu töskunum samt og svo var drifið sig út í bát:) Það var seinkun á bátnum og ferð tók eitthvað um 3 tíma þannig að við komum aldrei fyrr en um 6 leytið til Eyja, svo við nenntum ekkert niður í dal. Við leigðum okkur hús yfir hátíðina og maðurinn sem á íbúðina sem við vorum í var svo góður við okkur að hann sótti okkur bara sjálfur og skutlaði okkur „heim“:d Íbúðin okkar var rosa fín, ýkt kósý og svona frekar út úr þannig að maður fékk alveg frið til að sofa:d síðan komum við okkur fyrir og lögðum okkur svo:) við vorum upprunalega 7 saman en það bættist síðan ein við á föstudeginum;)

Eftir að hafa lagt sig aðeins, skroppið út í búð og horft á Pretty Woman þá byrjuðum við að drekka og fara í sturtu og svona, alltaf lang skemmtilegast að vera pínu sætur á Þjóðhátíð og þá skiptir sturtan höfuðmáli;) Eftir að við vorum búnar að sturta okkur, blása og slétta hárið og mála okkur og svona þá lögðum við af stað niður í bæ og beint á Lundann:) þar var öllum Grindvíkingunum heilsað, enda eiga þeir pleisið yfir Þjóðhátíð, settumst aðeins inn og spjölluðum en fengum svo leið á því og drifum okkur niður í dal. Þar hitti maður auðvitað fullt af öðru fólki og það er alltaf jafn fyndið hvað maður verður glaður að sjá fólk sem maður kannast við, maður er kannski ekkert vanur að heilsa þessu fólki heima en það gildir ekkert þannig í Eyjum;) Svo var það bara brekkan um kvöldið, sungið eins og brjálæðingur og dansað brjálæðislega mikið á ballinu á eftir:) vorum komnar heim um 5 leytið enda orðnar mjög þreyttar og pirraðar þá;)

Svo rann laugardagurinn upp þar sem sumir voru þunnari en aðrir og ældu langt fram eftir degi;) en það var nú minnsta mál, enda lágum við bara uppi í rúmi og spjölluðum í rólegheitum og fínerí:d svo tók sami hringurinn við, sturta, blása og slétta hárið, mála sig, byrja að drekka og koma sér út:) komum við í einhverju partýi á leiðinni, það var partý hjá Rúnari Inga og co. Svo var það bara dalurinn, sungið og dansað fram undir morgun:)

Þá kom sunnudagur. Og það var sama rútínan yfir daginn, liggja í rólegheitum, sturta, blása og slétta hárið, mála sig, byrja að drekka og koma sér svo út:) Það skipti sko höfuðmáli að vera komin tímanlega niður í dal á sunnudeginum til að vera á góðum stað fyrir Brekkusönginn:d við komum okkur fyrir á góðum stað og sötruðum á hinum og þessum tegundum af áfengi, allt rosa gott;) svo byrjuðu skemmtiatriðin og þau voru geðveik!! Páll Óskar var að koma aftur á Þjóðhátíð eftir 12 ára fjarveru og honum var sko fagnað vel! Fólk ætlaði sko ekki að fá nóg!! Bubbi stóð fyrir sínu og svo mætti kóngurinn sjálfur, Árni Johnsen! Brennunni var komið fyrir á sínum stað og kallinn stóð niðri og söng alla brekkusöngsslagarana sína og maður söng auðvitað hástöfum eins og vanalega:d Svo kom auðvitað að hápunkti kvöldsins, allir voru auðvitað beðnir um að standa upp þar sem átti að fara að syngja þjóðsönginn og að honum loknum var auðvitað kveikt á blysunum rauðu efst í brekkunni og það er bara besta móment í heimi!!! Allir svo glaðir:d eftir það er brjálað ball með aðal Þjóðhátíðarhljómsveitunum Landi og Sonum og Á móti sól... alltaf jafn gaman! Það var að vísu hellirigning en það stoppaði engan, fólk að renna sér í brekkunni og svona:) en á endanum gefast allir upp og fara heim:)

Ég, Bára og Anna María ákváðum að fara heim á þriðjudeginum þannig að við slökuðum bara vel á á mánudeginum meðan allir reyndu að komast sem fyrst heim, það gekk nú hálf erfiðlega fyrst þar sem það var svo mikil þoka að það var ekkert flogið en hún fór svo þannig að flestir sem vildu fara heim komust heim:) Við fórum hins vegar bara í sjoppu, leigðum okkur spólu, keyptum nammi og fórum heim og höfðum það kósý:) löbbuðum að vísu fyrst að Eldfellinu þar sem verið er að grafa upp einhver hús, bara við hliðina á húsinu okkar:) Rosa fræðandi og bara rosalegt að sjá að húsin eru bara heil þarna undir. Hefur örugglega verið hræðileg lífsreynsla fyrir þessar fjölskyldur að lenda í þessu. Síðan drifum við okkur heim á þriðjudeginum, mjög sáttar með ferðina enda ekki annað hægt:)

Þjóðhátíð er bara best í heimi, allir svo glaðir og fæstir sem nenna að vera með einhver leiðindi, fólkið í Eyjum er líka æðislegt, hleypa öllum inn til sín og eru til í að gera alla skapaða hluti fyrir mann:) Ég er bara í sæluvímu eftir þetta:d

En núna er þreytan farin að segja verulega til sín þannig að ég ætti að sofna núna:)

-Helga


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.07.2008 15:17:13 / johnsen

Jæja, þá er komið að þessu!

Ég ákvað nú svona að setja inn eina færslu til að prófa, þar sem ég hef ekkert betra að gera:)

Ég sit hérna í vinnunni og þetta er enn einn dagurinn þar sem ekkert er að gera, það kemur varla fólk hérna inn, en fyrir þá sem ekki vita þá er ég að leysa af úti í Vogum til 1. ágúst. Hálf fáránlegt að hugsa til þess að maður vakni á hverjum degi um hálf 9 leytið til þess einfaldlega að fara í vinnuna og bíða eftir því að klukkan verði 4, því tíminn sem ég eyði á dag í að afgreiða fólk sem kemur hingað eru ca. 15-20 mín... En hvað um það:)

Sumarið bara langt komið, Verslunarmannahelgin um næstu helgi sem þýðir að ég er á leiðinni á Þjóðhátíð! Tilhlökkunin er á háu stigi! Við stelpurnar verðum í einhverju húsi þarna einhvers staðar, hef ekki hugmynd hvar það er eða neitt, en það er á eyjunni svo þetta er í góðu;) þá getur maður nú geymt dótið sitt og komist í sturtu og svona eins og ekkert sé:d Svo verður maður bara rúllandi fullur í brekkunni með öllu fólkinu sínu og syngur hástöfum:d jiiii, ég spennist enn meira upp við allar þessar lýsingar, haha!! Það skiptir höfuðmáli að skemmta sér sem mest þarna því eftir þessa helgi er sumarið nánast búið:)

Annars hefur sumarið verið mjög viðburðarríkt, mikið djamm og skemmtun hjá okkur stelpunum, sem er nú sjaldnast leiðinlegt:)

Svo tekur skólinn við 1. september, fínasta fínt að breyta aðeins til, fara sem sagt úr því að horfa á tölvuskjá allan daginn í það að lesa eins og manni sé borgað fyrir það.. Gjörsamlega drukkna í bókum:) ætla sem sagt að læra lögfræði í Háskóla Íslands.. Er búin að kíkja á stundatöfluna mína og hún lítur bara vel út:) er yfirleitt bara til hádegis í tímum, restin af deginum fer nú samt í það að hanga í Lögbergi að lesa eða eitthvað, hehe:þ

En ætli ég segi þetta ekki bara gott svona í fyrstu færslu:)

-Helga


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.07.2008 15:26:06 / johnsen

Prófa!

Kannski prófa þetta aftur....

Kemur allt í ljós...

Kv. Helga


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 13:45:01 / johnsen

TILKYNNING

www.123.is/feimus

Allir að kíkja, við stelpurnar vorum að stofna;)

Helga

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 00:52:19 / johnsen

hvaðahvaða....

Sæl veriði... Held að það sé bara betra fyrir mig að blogga aðeins oftar ef einher á að fylgjast með;) Körfuboltinn er búinn í vetur eins og kannski margir vita en fyrir þá sem gera það ekki þá urðu Haukar og KR Íslandsmeistarar... Enginn bikar á Suðurnesin þetta árið:( maður verður nú að vera kurteis og óska þeim til hamingju sem tengjast þessum liðum og vilja eigna sér heiðurinn...

Eeeeennn.... við nennum ekki að tala meir um það;)

Þessa dagana eru frambjóðendur hinna ýmsu flokka á fullu að reyna að heilla landsmenn með alls kyns loforðum um betri daga það er að segja ef þeir fá að stjórna, stjórnmaálamenn standa sveittir í fjölmiðlum og rífast eins og hundar og kettir um það hvor sé betri... Fréttirnar snúast bara ekki um annað þessa dagana... Og síðastliðin 12 ár hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið stóri kallinn, þannig að maður spyr sig, er kominn tími á breytingar? Eða er núverandi stjórn bara í lagi? Hvað finnst ykkur? (komment takk;))

Á milli þess sem pólitík hefur verið í umræðunni þá tók einhver strákur sig til í Ameríku og drap rúmlega 30 manns ásamt að særa annan eins fjölda áður en hann drap sjálfan sig í háskóla í Virginíu. Ég á ekki til eitt aukatekið orð. Að fólk skuli geta gert svona lagað er hreint ótrúlegt. Mikið rosalega hlýtur greyið manninum að hafa liðið illa fyrst han þurfti að gera svona lagað. Að hugsa síðan út í allar fjölskyldurnar sem misstu ástvini sína þennan dag. Margt ungt fólk sem átti framtíðina fyrir sér í allskonar málefnum. Alveg rosalegt..Svo í gær kviknaði í Pravda og 2 öðrum húsum. Held að allt hafi eyðilagst. Alltaf leiðinlegt að horfa upp á svona, fólk glatar svo miklu, hlutum sem ekki er hægt að eignast aftur... Svo í gærkvöldi slösuðust 2 þegar sjóðandi heitt vatn flæddi um einhverjar götur Reykjavíkur eða eitthvað... Heyrði góðan brandara um atvikin í Reykjavík, þar sem var sagt að Reykvíkingar réðu einfaldlega ekki við það að vera Íslandsmeistarar í körfu, það færi bara allt í uppnám í borginni:P æææji, lélegur brandari, meira svona “you had to be there” móment;) ég er bara í einhverju svona kasti núna:P

Skólinn er á fullu þessa dagana, það er nú frekar rólegt hjá mér samt, ég fer í 3 próf  í næstu viku, þarf að kynn eina bók og svo búið, eða búið, allavega fyrir lokapróf:P

Ég fór á árshátíð skólans í gær. Ég held að ég hafi aldrei á ævinni verið eins fín og í gær:D Billa reddaði mér sko BIG TIME!!! :D hún gerði í mig greiðslu og reddaði mér geðveikum kjól(hefur alltaf langað í svona kjól:P) og málaði mig þannig að ég þurfti í rauninni bara að mæta:P ég sem var ekki einu sinni viss í byrjun hvort ég ætlaði að fara:P það hrósuðu mér allir fyrir það hvað ég var fín, alveg rosa gaman hjá mér:D svo var þvílíkt stuð bara, fyrir kannski utan það að maður þekkti kannski helminginn af öllum sem voru á ballinu, allt yngri krakkar þarna, maður er greinilega orðinn svona gamall að maður er eiginlega orðinn elstur þarna, ussssss.....

Svo er það ball um helgina og ball um næstu helgi, bara nóg að gera:D alltaf gaman að hafa nóg að gera:D langar alveg rosalega að fara í búðir og kaupa mér föt, bróðir hans Bensó og kærasta komu heim í dag frá Ameríku með fullar töskur af fötum, langar svoooo að versla!!

Svo heldur áfram að styttast í íbúðina, bara 12 dagar! Svo 11, svo 10 og svo minna en 10!!!! Finnst eins og ég sé nýbúin að ákveða að kaupa þessa íbúð sem var by the way í janúar....

En ég ætla heim, er búin að vinna;)

BlessBless8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 00:01:52 / johnsen

puffff......

Vááá, er þessi síða alveg að gefa upp öndina eða hvað.....??? Það er svo leiðinlegt að skrifa bara til að skrifa..... Svo er það alltaf þannig þegar maður er búinn að skrifa rosa langan og innihaldsríkan pistil þá fokkast eitthvað upp sem gerir mann svo pirraðan að manni langar að fara að grenja!!!!Æji mig langar að skrifa alveg hundleiðinlegan pistil og kvarta yfir öllu mögulegu en svo veit maður ekkert hvar á að byrja eða hvað á að segja... Líf mitt hefur nú ekki verið neitt spennandi þessa næstum 2 mánuði síðan ég skrifaði síðast.... Við stelpurnar erum nú búnar að vera að hittast í afmælum hjá hverri annarri, Bára, Ingibjörg og Anna María eru allar búnar að eiga afmæli og halda hitting í tilefni af því, innilega til hamingju með það stelpur mínar;)Skólinn er alltaf á sínum stað, alveg alltaf jafn leiðinlegt að hugsa um hann, að vísu er ég þegar komin með 3 einingar og prófin ekki einu sinni byrjuð, toppiði það;) þannig er að eðlisfræðikennarinn minn er/var ólétt og sko alveg að fara að eiga þannig að hún lét okkur taka lokaprófið í mars í staðinn fyrir apríl svo við yrðum ekki ryðguð þegar kæmi að prófum, ég náttla sendi konunni e-mail og fékk að vita það að ég hafi náð prófinu og þar með áfanganum með einkunnina 7:D ágætis árangur miðað við að hafa tekið áfangann á hraðferð, að vísu skil ég ekki hvernig fólkið sem hefur tekið þennan áfanga gat verið svona lengi með efnið vegna þess að mér fannst þetta ekkert hröð yfirferð hjá kennaranum, svona getur maður verið gáfaður skoh!;) Það er loksins komið páskafrí í skólanum, alveg rosalega þægilegt að fá 1 og hálfa viku í frí áður en kennararnir koma aftur og pína okkur til dauða með prófum og verkefnum! Svo eru það bara 5 próf og svo suuuumar!!! Og ný íbúð!! :D váá, bara 32 dagar í þetta, uusssss.... ég er ekki ennþá búin að fá vinnu neinsstaðar, alveg hundfúlt að vita ekki neitt, ég er greinilega ekki nógu heillandi starfskraftur;) Ég fór á kvennaleik í körfunni áðan þar sem Keflavík komst í úrslit með því að vinna Grindavík 3-1...;) alveg stórgóðar fréttir:D ég lét dómarana heyra það í leknum kannski ekkert nýtt en einn dómarinn horfði alveg rosalega á mig á meðan ég öskraði, og ég bara lét hann hafa það, alveg eldrauð í framan af pirringi!;) svona getur maður lifað sig inní hlutina, ég verð fyrri svolitlum áhrifum samt, frá honum Benóný sem öskrar ALLTAF eins og brjálæðingur.. Ungfrú Suðurnes er að klárast núna as we speak, flestar stelpurnar ætluðu að fara, ég komst ekki vegna vinnu, mér finnst ég alltaf vera að vinna þegar við stelpurnar ætlum að gera eitthvað, alveg ógó leðinlegt!:(Hann Benóný minn átti afmæli núna á miðvikudaginn og varð 19 ára;) til hamingju með það;) en mér tókst líka að skemma fyrir honum afmælismatinn hans, sem kemur fólki kannski ekkert á óvart... við nefnilega lögðum okkur og svo átti ég að vakna og fara að kaupa eitthvað gott en þegar klukkan hringdi rumskuðum við ekkert og sváfum þess vegna yfir okkur, eða sko, ég átt náttla bara að vakna ekki hann þannig að afmælismaturinn hans varð að engu:S ég er algjör sauður! Ég var samt fyrr um morguninn búin að segja við hann að ég myndi koma honum á óvart um þarnæstu helgi þegar við værum bæði í fríi, þannig ég ætla að reyna að bæta upp fyrir mistökin:) vonum bara að það takist, hehehe.....Vááááá hvað manni getur leiðst í vinnunni, endalaus bið hérna! Seinkanir og svona.... Það getur nú samt verið nokkuð skemmtilegt að fylgjast með fólkinu hérna, hvað sumir eru skemmtilega skrýtnir;) reyndar sé ég oft stráka bíðandi eftir kærustunum sínum með blóm og fínerí, ég væri ýkt til í að fá svoleiðis móttökur:D ég er líka svo væmin:P Mér langar alveg rosalega til útlanda núna, komast eitthvað í burtu að slaka á eða fara bara til Ameríku að versla:haha: vááá hvað það væri ekki slæmt...;) Fjölskyldan er nú samt eitthvað að gæla við það að fara til Flórída næstu jól þegar ég er búin að útskrifast, hvernig er samt að vera í útlöndum yfir jólin?? Er það alveg allt í lagi??? Endilega fræðið mig um það;)Hætt...... BlessBless8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 00:25:14 / johnsen

Blogg fyrir Báru;)

:) Ég er að pæla í að tileinka henni Báru þetta blogg, hún virðist alveg halda heimsóknunum á þessari síðu uppi;) takk Bára:D

Heyrðu, það hefur nú ekki mikið skeð síðustu daga eða vikur eftir þetta slys okkar Bensó. Hann er rifbeinsbrotinn og bakið mitt er alveg í hönki:( Ég fór í ræktina til að hlaupa í vikunni, á mánudag og þriðjudag, og var helvíti sátt, en svo á miðvikudag byrjaði ég bara að fá þvílíka verki og er búin að vera verst í dag:S ætla til læknis eftir helgi og krefjast þess að vera skoðuð betur, nenni þessu ekki!

Við fórum uppí bústað um síðustu helgi:) fórum uppí Húsafell og vorum í bústaðnum hjá Iðnsveinafélagi Suðurnesja:) afi minn var alltaf yfir þessu áður en hann dó og ég hef nú verið þarna nokkrum sinnum áður:D voða fínt og sko nóg pláss:D En þeir sem voru, voru ég, Bensó, Palli og Bára, Óskar og Anna María, Maja og Tobbi, Bjössi og Einar Helgi og svo kíktu Sævar og kærastan hans, Bjarney aðeins en fóru frekar snemma, þetta var bara helvíti gaman, grilluðum geðveikan mat og vorum MIKIÐ í pottinum, hehe:P svo fóru ég, Bensó, Palli, Bára og Óskar í göngutúr um nóttina, og það var sko bara svell á vegunum allsstaðar, ætluðum að labba á trampólínið sem er sko þvílíkt langt frá bústaðnum... Hættum við að fara á miðri leið og á leiðinni til baka þá flaug ég svona líka þvílíkt á hausinn og beint í poll, hehehe, ég var algjör sauður:P en þetta var bara mjög fín ferð og það verða bara að koma fleiri með næst, verðum að gera þetta fljótlega aftur:D

Svo á sunnudaginn þá horfði ég á Kompás, þessi líka snilldarþáttur að mínu mati. Það var verið að fjalla um barnaníðinga á Íslandi og hvað þeir segja við börn og svona, að vísu voru þeir ekki sýndir af því þeir hafa ekki verið dæmdir fyrir neitt svona áður, ekki svona eins og hann þarna sem kom í þættinum fyrir hálfum mánuði, Árni eða hvað sem hann heitir. En það sem menn gera við börn er bara alveg ótrúlegt, þetta er bara ógeðslegt og það á að senda svona menn alla á Litla-Hraun því þar fá þeir verstu meðferðina, verða einfaldlega lamdir í klessu!

Annað sem ég þoli ekki, það eru tryggingafélög eða allavega Sjóvá-Almennar, meiri helvítis ræningjarnir. Ráðlegg öllum að passa sig eins og þeir mögulega geta að lenda ekki tjóni.... vááhvað, þetta er heimskulegt, held að enginn vilji eikkað vera að lenda í tjóni þannig að ég held að það passi sig nú allir:P

Búin að vinna, er farin heim

BlessBless8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 17:27:17 / johnsen

Það er aldrei of varlega farið!

Sæl veriði....

Gærdagurinn var alveg rosalegur hjá mér!8| hann brjaði svona eins og vanalega, ég fór í skólann og svona, svo var ég bara búin kl 2. síðan voru ég og bensó á leiðinni í grindavík og vorum að keyra upp á flugvallarveginn, við tökum eftir því að færðin væri mjög léleg og það væri hálka, við sáum næstum ekkert fram fyrir okkur! Þá segir bensó: nú þarf maður að einbeita sér alveg þvílíkt mikið að veginum! Svona 10 sek seinna lendum við í slysi! Við vorum að keyra á svona 40 km hraða! Málið var að það var rosa hálka, samt var vegurinn ekkert lokaður þannig að það var nú alveg hægt að keyra hann og þa var nokkuð mikil umferð. Hinn bíllinn var líka á 40 en höggið sem maður fék við þetta var alveg rosalegt!!! Væri sko ekki til í að lenda í slysi á 90!!! En áfram að sögunni.... þegar við vorum búin að klessa á bílinn, misstum við bæði andann í svona 15 sek, bensó barði í mig og við hlupum út úr bílnum, það var þvílík brunalykt inní bílnum, og svona 10 sek eftir að ég hafði hlupið fram fyrir bílinn þá keyrði rúta á bílinn!8| ég stóð sko við hliðina á bílnum og bilaðist af hræðslu! Svo hringdi bensó á löggubíl og sjúkrabíl.... við settumst inn í bílinn hjá hinu fólkinu því okkar var ekki í ástandi fyrir svoleiðis... svo komu löggubíll og sjúkrabíll og við vorum flutt niður á sjúkrahús í skoðun... við vorum í um 2 tíma og fórum í röntgen og svona, síðan var okkur sagt að fara heim, taka það rólega og borða nóg af verkjatöflum því helgin yrði alveg mjög slæm... ég sit sem sagt hérna eins og ég hefi verið lúbarin og reyni að lýsa þessu eins og ég get. Ég og bensó erum tognuð í bakinu og að drepast í bringunni. Bensó er alveg þvílíkt marinn eftir beltið og ég er með skrámur á ýmsum stöðum. Hann TJ okkar lét hins vegar því miður lífið í gær:cry: við erum alveg eyðilögð yfir þessu að þessi elska sé farin úr lífi okkar, hann var alveg yndislegur... Blessuð sé minning hans, það verður vonandi haldin minningarathöfn um hann á næstunni. En ég nenni þessu ekki meir, ég ætla að fara að fá mér verkjalyf og leggjast í sófann, farið varlega í umferðinni, það er aldrei of varlega farið....

 

 



BlessBless


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 00:03:58 / johnsen

-2006-

Gleðilegt nýtt ár! :D

Ég veit að ég ætlaði að koma með blogg á milli jóla og nýárs en ég var bara mjög upptekin og svo er tölvan mín biluð þannig að ég gat voða lítið bloggað, sorry:S

En síðasta ár var eitt það besta hingað til:D margt skemmtilegt skeði og ég upplifði margt nýtt;) ég ætla að reyna að telja upp það sem skeði á árinu;)

Ég byrjaði með alveg yndislegum strák, honum Benóný/Bensó/Tankinum eða hvað sem þið viljið kalla hann, hahaha:haha: alveg hræðilega æðislegur;)

Fyrstu mánuðirnir voru bara rólegir og fínir, skólinn var bara á fullu þó svo ég hefi ekki verið á fullu í skólanum, fékk það líka alveg í bakið:) Svo kom maí og skólinn kláraðist loksins;) ég byrjaði að vinna hjá IGS í flugeldhúsinu og það annað árið í röð sem er by the way MISTÖK! Skil ekki alveg hvað ég var að hugsa! Unnur var að vinna með mér þannig að ég drapst ekkert úr leiðindum;)

Benóný fór á sjó, mæli ekki með því að vera með sjómanni, ekkert spennandi, hann samt slasaði sig aðeins og gat ekki farið í seinni túrinn sinn um sumarið, greyið...

Sjómannahelgin fræga var í Grindavík;) alveg rosalega gaman, fyrir utan hana Unni sem var svo hræðilega leiðinlega full að ég passaði mig nú bara á því að hitta hana sem minnst(Unnur ég hætti ekkert að bögga þig með þessu;))

Í byrjun júlí var svo haldið á Vindheimamela í Skagafirði og horft á hana Camillu mína keppa í hestum, ég og Benóný fórum ásamt henni Unni(þriðja hjólið;)) og var þetta þvílíkt skemmtileg helgi, með alveg fullt af skemtilegu fólki:D Benóný var þó hæstánægður með kæliboxið fyrir bjórinn, alveg reddaði helginni hans;) Það urðu að vísu nokkuð mörg dauðaslys þessa helgi rétt hjá mótinu, alveg hræðilegt....

Svo ekki löngu seinna, fórum við á Akranes á írska daga, þar sem örugglega flestir Suðurnesjaunglingar lögðu leið sína, alveg þvílíkt stuð og ekkert nema fyllerí;) ég brunaði beint úr vinnunni á Akranes, gisti eina nótt og brunaði aftur í Keflavík í vinnuna, ekki slæmt8)

Síðan ekki svo löngu seinna héldum ég og Benóný til Tenerife á 5 stjörnu hótel með fjölskyldunni minni og fleirum, geeeeeðveikt að geta farið svona út og ekki skemmir þetta hótel sem við vorum á:D við vorum í viku á meðan hinir í fjölskyldunni voru 2:)

Síðan held ég að hápunkturinn af þessu öllu saman hafi verið Þjóðhátíð 2006:D Vááááá, hvað þetta var ógeðslega gaman, ég fór að vísu bara á sunnudeginum en ég hefði aldrei viljað missa af því:D bara stemmingin þarna var rosaleg! ;) allir í góðu skapi, syngjandi og dansandi um allt:D vááá, þetta er bara eitthvað sem mér finnst að allir ættu að prófa:D ég ætla að reyna að fara einhvern tímann aftur:D

Svo byrjaði skólinn bara fljótlega eftir það og ég sá fram á að önnin mín yrði hræðileg, líffræði, efnafræði, eðlisfræði, jarðfræði, stærðfræði, úffff.... ekkert smá að muna í einu... en það hafðist þó;)

Í byrjun nóvember fór ég með mömmu Benónýs og systur til Baltimore, þessi ferð var eingöngu ætluð til að versla og það tókst mjög vel;) hins vegar urðum við svo ógeðslega óheppnar að festast þarna í 2 auka daga og það endaði með því að við keyrðum frá Baltimore til Boston og flugum þaðan heim, ég hef nú bara aldrei lent í öðru eins, ég mæli sko ekki með því að fólk fari á frímiða til Bandaríkjanna, þið skuluð þá allavega ekki gera ykkur vonir um að komast endilega heim á tilsettum tíma! Við komumst þó að lokum heim sem betur fer með 2 TROÐFULLAR ferðatöskur hver og bros á vör;)

Svo var önnin í skólanum kláruð þannig að ná á ég bara 2 annir eftir:D ég fór í dag að ná í stundatöfluna mína og ég held að mín stundatafla sé sú besta sem hægt er að fá, allir dagar eru frá 8-2, bara rólegt og rómantískt:D

Ég og benóný vorum líka að kaupa okkur íbúð, hún er í Grindavík og við fáum hana 1. maí:) Partý hjá mér! :D

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna, fólk nennir ekkert að lesa alltaf svona löng blogg;)

BlessBless8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 07:44:23 / johnsen

-

Var búin að skrifa ýkt langan pistil en það datt allt út, það eru ekki alltaf jólin;)

en það eru sko jól á morgun, og mig hlakkar til:D ég kem með annan pistil milli jóla og nýárs;) hafið það gott um jólin:D

Gleðileg jól!

Helga jólabarn


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 22:01:45 / johnsen

JÓLIN!

Sæl.

Váá! Það er alveg ótrúlega kalt úti þessa dagana. Ég er hvað eftir annað að klæða mig eins og eskimói þegar ég fer út og ég læt mér ekki detta það til hugar að fara úr úlpunni í skólanum.

Að vísu er þetta frekar tilgangslaust hérna hjá mér, ég sit hérna uppi í flugstöð, þar sem er nú frekar kalt, og er að bíða. Partur af vinnunni sko:)

Svo eru kennararnir að byrja að missa sig, sem gerist tvisvar á ári, rétt fyrir jól og svo á vorin, en það er að líða að prófum. Og ég skil ekki af hverju þeir eru alltaf á síðustu stundu með allt, af hverju flýta þeir sér ekki bara svona mikið í byrjun þegar fólk er að koma ferskt í skólann úr fríi og tekur þessu svo rólega í restina. Í staðinn eru þeir kannski ekkert að flýta sér neitt alltof mikið til að byrja með, en svo í restina fá þeir kast og demba heilum helling af prófum og verkefnum á eina viku. Það eru greinilega ekki allir jafn gáfaðir og maður sjálfur;) en svona er þetta víst.

En aldrei þessu vant að þá er ég sko alls ekki búin að átta mig á því að jólin eru eftir mánuð. Hefði nú haldið að jólafílingurinn kæmi með snjónum en það gerðist bara ekki, ég fékk bara þessa leiðinlegu kuldatilfinningu í staðinn:S Ég er ekki einu sinni farin að spá hvernig jólagjafamál standa. Ég geri það hvort sem er ekkert fyrr en á síðustu stundu svona eins og vanalega;) Ég á alveg rooosalega erfitt með að ákveða hvað ég á að gefa sumum aðilum í jólagjöf, það virðist alltaf vera erfiðast að gefa þeim sem maður telur að maður þekki mest. Finnst það fáránlegt.

Heyriði, skólinn á afmæli. Og það er víst eitthvað ball í tilefni af afmælinu á föstudaginn. Ætlar einhver að fara? Væri mjög þakklát ef fólk myndi nenna að kommenta á það hvort þeir ætli:P Ég er að vísu að vinna þannig að ég býst ekki við að fara:S Og ég var líka að heyra það að það væri búið að fresta Hljóðnemanum þangað til eftir jól. Það er bara asnalegt! Hljóðneminn á að vera á þessum tíma!

En ég ætla að fara að koma mér heim, pása;)

BlessBless8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 00:38:25 / johnsen

ég bara á ekki til orð!

Sæælar! ;) heyrðu já... ég er á lífi:D jámm, það er sko búið að vera fullt að gera hjá mér síðan síðast;) eins og einhverjir vita að þá fór ég til baltimore með mömmu hans Benóný og systur. Þetta var hin fínasta ferð nema það að komast heim var greinilega erfiðasta verk í heimi! Nenni að vísu ekki að segja þessa sögu aftur, er búin að þylja hana upp svona átjánhundruð sinnum, en þetta endaði allavega þannig að við keyrðum í 9 klukkutíma til boston á þriðjudegi og komumst loksins heim:D keypti heilan helling, þá sérstaklega á hann benóný sem á nú föt fyrir næsta áratuginn;) svo er ég búin að vera að vinna, í skólanum, á æfingum og fleira... ég fór á morfís í gær, sem var aleg ótrúlega skemmtilegt:D Benóný var að keppa og stóð sig langbest finnst mér sko! (ég er ekkert hlutdræg, hahaha! :haha:) og ég vill koma þvíá framfæri að þeir sem eru að velta þessari Ikea sögu fyrir sér þá er þetta mjög ýkt saga, ég náði að vísu að draga hann Benóný með mér í Ikea en hef samt eki hugmynd hvort það tók okkur 53 mínútur að labba í gegn og við keyptum okkur ekki hillu á 18.800:P Það voru alveg ótrúlega margir sem mættu frá FS og við vorum helmingi fleiri en þeir í Flensborg sem by the way voru á heimavelli;) alveg 3 fullar rútur eða um 200 manns;) alveg rosa gaman:D á eftir var síðan skellt sér á Paddy’s á kaffihúsakvöld, mjög fínt bara;) en það er kósýkvöld núna hjá mér þannig að ég ætla að segja þetta gott í bili:) BlessBless8)

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 16:38:20 / johnsen

helgin

Hææj...

Alveg merkilegt hvað dagarnir eru eitthvað fljótir að líða þessa dagana, það eru alveg að koma jól, finnst svo stutt síðan síðustu jól voru, þessi önn í skólnum er meira en hálfnup og það styttist óðum í próf:S

Ég fór í óvissuferð með meistaraflokki karla og kvenna, stjórninni og trommusveitinni í körfunni á laugardaginn, bara mjög skemmtileg óvissuferð, veðrið var ekki beint að gera sig en mar lét það ekkert á sig fá, mar fór bara í Eyjagallan og þá var mar reddý8) við byrjuðum á að mæta uppí íþróttahús kl hálf 2 og urðum að bíða svolitla stund eftir rútunni, fólk fékk sér bara bjór og spjallaði, síðan kom rútan loksins og við lögðum af stað með stuttu stoppi til að sækja nýja kanann hjá köllunum, hann Timmy;) hann hafði bara lent þarna fyrr um morguninn og þurfti ekki að mæta uppí íþróttahús heldur var honum leyft að sofa aðeins lengur:) svo héldum við af stað og keyrðum og keyrðum og keyrðum, fórum í allskonar leiki á leiðinni í rútunni, sem verður nú reyndar ekkert farið nánar útí því að “what happened in the trip stays in the trip;)” við stoppuðum nú á endanum og var það á Indriðastöðum, held ég:) fólk var nú orðið nokkuð ölvað á þessum tímapunkti en við fórum inn í eitthvað hús þar sem allir voru klæddir í Kraftgalla og svo fórum við útí rigninguna í leiki og allskonar skemmtilegheit:P eftir það fórum við úr Kraftgöllunum og inn í hlöðuna sem var á bænum, sem er reynda ekki hlaða heldur eins konar salur þar sem hægt er að halda litlar veislur og voða fínt:D þar fengum við gúllassúpu og brauð og ef þú drakkst ekki áfengi þá fékkstu bara vatn, þannig að kvöldmaturinn minn var vatn og brauð þar sem mér fannst gúllassúpan ekkert spes og ég drekk ekki áfengi:) svo fórum við í nokkra leiki og dönsuðum og meira gaman, héldum svo af stað aftur heim með stoppi á Mótel Venus rétt hjá Borgarnesi held ég, annars var ég ekkert mikið að spá í hvar við vorum, var bara á spjallinu, hehehe:P svo þegar allir voru nú búnir að kaupa sér meira áfengi og piparsleikjóa þá gátum við lagt af stað heim, og þegar við loksins komum heim aftur, fóru nokkrir rúllandi fullir í partý til eins stjórnarmannsins á meðan sumir fóru að gera sig til fyrir frekara djamm en aðrir fóru bara heim, ég var nú alveg komin með nóg þannig að ég fór bara til Grindavíkur:) þetta var ferðin svona í grófum dráttum:D

Fyrir utan þetta hefur helgin bara verið róleg, var reyndar að vinna, fínt svo sem, mar græðir bara á því;)

Benóný fór í háls- og nefkirtlatöku í morgun, greyið:| aðgerðin hans átti að vera kl 9 en var seinkað um 2 tíma... minn tók sig bara til og svaf allan tímann, rumskaði reyndar aðeins þegar hann var látinn vita að aðgerðin væri að fara að byrja en svaf annars bara;) ég ætla nú reyndar að kíkja á sjúklinginn á eftir, kemst samt ekki fyrr en ég er búin á æfingu, hefði verið fínt ef það hefði ekki verið æfing í dag en hann getur bara étið frostpinna á meðan, krakkinn, hehehe:P Jæja, ég þarf að fara að lesa í íslensku, próf á morgun úr einhverri bók:)

-BlessBless8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 15:19:13 / johnsen

jább:)

Jæja, sææl;)

Váá, hvað þessi vika var rosalega fljót að líða eitthvað.. mér fannst dagarnir bara fljúga áfram, ussss, hehehe:P en það er komin enn önnur helgin, vinnuhelgin mín, og það er bara nóg að gera:D

Vorum að keppa í gær á móti Breiðablik, þetta var æfingaleikur.. við unnum og Kara skuldar orðið 2 kassa núna af því að hún er 2svar á þessari leiktíð búin að skora hundraðasta stigið;) Kara, mér finnst ólíklegt að þú sleppir, þessar eldri eru held ég allar búnar að skrá þetta hjá sér, hehehe;) en við sem sagt unnum þennan leik, svolítið stórt og vorum bara að spila nokkuð vel:D flestar stelpurnar fóru á ball beint eftir leikinn en ég fór bara í Grindavík, það var líka uppselt þegar ég fór að spá í að kaupa mér miða, þannig að það voða lítið hægt að gera í þessu, er samt svekktust yfir að hafa ekki getað farið á ball með Páli Óskari og systir mín sjálfsagt lemur mig þegar hún kemst að því að ég fór ekki á ball með Páli Óskari, sem er guðinn hennar;) ef hann væri ekki hommi þá myndi hún örugglega reyna við hann, hehehe:P

En það er óvissuferð á morgun, er að fara með meistaraflokkunum, bæði karla og kvenna, stjórninni og trommusveitinni, þetta verður örugglega mjög skemmtileg ferð, er allavega farin að hlakka til:D get eiginlega ekki sagt mikið meira um þessa ferð þar sem þetta er óvissuferð, hehe:P

Kvöldið í kvöld fer í að vinna og svo ætla ég að reyna að skreppa í afmæli hjá henni Dísu, en hún varð einmitt 19 ára á miðvikudaginn, til hamingju með það;)

Þetta verður bara skemmtilegt:D blogga svo betur eftir helgi og kem með myndir, vonandi fullt:D

-BlessBless8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 20:10:12 / johnsen

helgin o.fl.

Sæl veriði...

Þá er enn ein vikan að byrja... helgin var hin ágætasta fyrir utan eitt hræðilegt atvik, við töpuðum á móti Grindavík í undanúrslitum í fyrirtækjabikarnum:( þetta er náttla alls ekki nógu gott þar sem kærasti minn og öll hans fjölskylda eru hinir hörðurstu Grindvíkingar og ég mátti sko aldeilis fá að heyra það frá honum mági mínum, áttum þetta svo sem skilið, vorum ekki alveg að fera það sem við áttum að gera og þær voru alveg að meika það hjá Grindavík, þetta gerist bara ekkert aftur!

En karlarnir hjá Keflavík unnu hins vegar Hópbílabikarinn þannig að það var nú hægt að fara og fagna því;) byrjuðum á að hittast heima hjá Ingibjörgu í smá liðsteiti sem var bara mjög gaman.. síðan var partý hjá einum liðsmanni karlaliðsins og svona fínheit, fólk var ansi skrautlegt:) gaman að því... ég var hins vegar ekkert lengi, náði einhvern veginn ekkert að koma mér í almennilegt stuð þannig að ég fór bara heim:P

Það fer að verða meira að gera í skólanum núna, það fara að verða fleiri og fleiri próf og svona, kennararnir eru svona að byrja að missa sig, en svona er þetta bara alltaf:)

Jiiii, þetta er eitt af þessum verulega tilgangslausu bloggum hjá mér þar sem ég hef bara gjörsamæega ekkert að segja og er svona að reyna að teygja þetta eitthvað til þess reyna að gera þetta áhugaverðara en það er bara ekkert að ganga... Líf mitt er einhvern veginn voða rólegt þessa dagana.

Heyrðu jú, það styttist reyndar í að ég fari til Ameríkunnar að versla:D er að fara með tengdó og mágkonu minni, verður örugglega hin ágætasta ferð, erum að fara til Baltimore og verðum í alveg 5 daga:P það er nú hægt að verlsa slatta á þeim tíma vona ég8) gott líka að komast svona rétt fyrir hátíðirnar, þá getur mar keypt jólagjafirnar sko;)

En ég nenni ekki að draga þetta meira, það verður ekkert merkilegra uppúr þessu, hehee:P

-BlessBless8)

 



 

ein mynd úr Eyjum, geðveikt gaman! langar aftur!:D




» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Heimsóknir
Í dag:  12  Alls: 32794
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Klukkan